Níu létust í mótmælum í Íran

AFP

Níu létust í mótmælum í Íran í gærkvöldi og nótt en mótmælendur reyndu að komast inn á lögreglustöð í bænum Qahderijan. Undanfarna fimm daga hafa fjölmargir tekið þátt í mótmælum í Íran en þau beinast einkum að stjórnvöldum vegna mikilla verðhækkana á vörum undanfarið. Alls hefur 21 látist í mótmælunum. 

Forseti Írans, Hassan Rouhani, segir að gripið verði til aðgerða gegn uppreisnarseggjum og lögbrjótum en ummæli hans hafa haft lítil áhrif á þá sem taka þátt í mótmælunum, þeim fjölmennustu frá árinu 2009 í Íran.

Ali Shamkhani, yfirmaður þjóðaröryggisráðs Írans, segir mótmælin vera stærstu áskorunina sem stjórnvöld hafi staðið frammi fyrir frá árinu 2009 og segir mótmælin vera staðgöngu­stríð (proxy war) gagnvart írönsku þjóðinni.  Hann segir í viðtali við fjölmiðla í Íran að myllumerki og skilaboð um ástandið í Íran komi frá Bandaríkjunum, Bretlandi og Sádi-Arabíu. Ekki frá Íran. 

Um 450 manns hafa verið handteknir í Teheran, höfuðborg Írans, undanfarna þrjá daga vegna mótmælanna, þar af voru 200 handteknir á laugardag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert