Sameiginlegt lið Kóreuríkjanna á ÓL

Vetrarólympíuleikvangur í Pyeongchang í Suður-Kór­eu.
Vetrarólympíuleikvangur í Pyeongchang í Suður-Kór­eu. AFP

Norður- og Suður-Kórea munu koma fram undir sama fánanum á vetrarólympíuleikunum í Pyeongchang í Suður-Kór­eu 9. fe­brú­ar. Ríkin munu einnig senda sam­eig­in­legt lið í ís­hokkí kvenna. 

Þetta samþykktu stjórnvöld landanna tveggja á fundi sínum í bænum Panmunjom sem liggur að landamærunum, að sögn Yonhap fréttastofunnar. Í næstu viku munu fulltrúar frá Norður-Kóreu heimsækja suðrið og meðal annars taka út aðstöðuna á leikvangi ólympíuleikanna. 

Á næstunni munu keppendur frá Suður-Kóreu í skíðaíþróttum æfa sig fyrir ólympíuleikana á skíðasvæðinu Masikryong fyrir norðan.  

Fyrir viðræðurnar höfðu ráðamenn landanna tveggja ekki átt í neinum samskiptum frá því í des­em­ber 2015. 

Norður- og Suður-Kórea hafa áður gengið sam­an inn á opn­un­ar­hátíð Ólymp­íu­leika. Þau gerðu það fyr­ir leik­ana árið 200, 2004 og vetr­ar­leik­ana árið 2006.

Norður-Kórea sniðgekk hins veg­ar Ólymp­íu­leik­ana í Seoul í Suður-Kór­eu árið 1988.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert