Þrældómur gæti hafa verið „val“

Kanye West og Donald Trump Bandaríkjaforseti virðast vera ágætir félagar. …
Kanye West og Donald Trump Bandaríkjaforseti virðast vera ágætir félagar. Myndin er úr safni. AFP

Rapparinn Kanye West sagði í gær að þrældómur svartra í Bandaríkjunum gæti hafa verið „val“. Ummælin lét West falla í sjónvarpsþætti TMZ.

„Þegar þú heyrir um þrælahald í 400 ár...400 ár? Það hljómar eins og val,“ sagði West í áðurnefndum sjónvarpsþætti. Svart fólk var flutt nauðugt frá Afríku til Bandaríkjanna á 17., 18. og 19. öld og selt þar í þrælahald.

West sagði síðar á Twitter að orð hans hefðu verið mistúlkuð og að hann hefði talað um árin 400 vegna þess að það mættu ekki verða 400 ár í viðbót.

West sagði í viðtalinu að svart fólk í Bandaríkjunum veldi að vera þrælar. Sjónvarpsmaður TMZ, Van Lathan, svaraði West fullum hálsi. „Þú mátt trúa hverju sem þú vilt en raunveruleiki og líf fólks er á bak við það sem þú sagðir. Ég er hneykslaður og særður,“ sagði Lathan.

West lýsti því enn fremur að Donald Trump Bandaríkjaforseti væri „hans maður“ og að forsetinn væri uppáhald rappara.

Frétt BBC.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert