Tíst Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, á Twitter þar sem hann dró í efa sannleiksgildi frásagnar Christine Blasey Ford, sem sakað hefur Kavananaugh, dómaraefni Trumps, um kynferðislegt ofbeldi þegar þau voru á táningsaldri, hefur nú getið af sér nýtt myllumerki í anda #metoo. BBC greinir frá.
Forsetinn sagði á Twitter á föstudag að ef hin meinta árás hefði „verið jafnslæm og hún sagði“ hefði Ford, eða foreldrar hennar, lagt fram kæru.
I have no doubt that, if the attack on Dr. Ford was as bad as she says, charges would have been immediately filed with local Law Enforcement Authorities by either her or her loving parents. I ask that she bring those filings forward so that we can learn date, time, and place!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) September 21, 2018
Nú hefur orðið til myllumerkið #WhyIDidntReport eða „af hverju lagði ég ekki fram kæru“ og þegar þetta er ritað hafa tæplega 700 þúsund tíst birst undir merkinu. Margar kvennanna tala um hvernig þær hafi upplifað skömm og fundist þær vanmáttugar. Þá hafi þær upplifað ótta við að vera ekki trúað. Þær hafi hins vegar eytt mörgum árum og jafnvel áratugum í að reyna að vinna úr erfiðri reynslu eða gleyma henni.
Margar þekktar leikkonur hafa stigið fram undir merkinu og sagt af hverju þær kærðu ekki. Ein þeirra er Alyssa Milano sem var áberandi í #metoo-byltingunni.
Hún ávarpar Trump í tístinu og segir honum frekar óblíðlega að hlusta. „Ég hef tvisvar orðið fyrir kynferðisofbeldi. Í annað skiptið þegar ég var unglingur. Ég kærði aldrei til lögreglu og það tók mig 30 ár að segja foreldrum mínum.“
Hey, @realDonaldTrump, Listen the fuck up.
— Alyssa Milano (@Alyssa_Milano) September 21, 2018
I was sexually assaulted twice. Once when I was a teenager. I never filed a police report and it took me 30 years to tell me parents.
If any survivor of sexual assault would like to add to this please do so in the replies. #MeToo https://t.co/n0Aymv3vCi
I did, it didn’t matter, I was dismissed, disparaged, & I still get blamed #WhyIDidntReport
— Daryl Hannah (@dhlovelife) September 21, 2018
#WhyIDidntReport. The first time it happened, I was 7. I told the first adults I came upon. They said “Oh, he’s a nice old man, that’s not what he meant.” So when I was raped at 15, I only told my diary. When an adult read it, she accused me of having sex with an adult man.
— ashley judd (@AshleyJudd) September 21, 2018