Drápu tvo Palestínumenn

AFP

Ísraelskir hermenn skutu tvo Palestínumenn til bana á Vesturbakkanum í dag. Samkvæmt tilkynningu frá Ísraelsher höfðu mennirnir ráðist á hermann og slasað auk þess sem þeir hafi ráðist á lögreglumann á landamærunum.

Hermenn hafi skotið á Palestínumennina og drepið tvo þeirra en sá þriðji hafi særst lítillega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert