Lætur af embætti vegna ljóðsins

Christian Schilcher, aðstoðarborgarstjóri Braunau am Inn.
Christian Schilcher, aðstoðarborgarstjóri Braunau am Inn. AFP

Aðstoðarborgarstjóri fæðingarbæjar Adolfs Hitlers mun láta af embætti í kjölfar mikillar reiði vegna kvæðis sem hann orti. Í ljóðinu líkir hann flóttafólki við rottur. Flokkur hans, Frelsisflokkurinn (FPÖ), greindi frá þessu í dag.

Ljóð var birt í dag­blaði FPÖ um páskana og hef­ur kansl­ari Aust­ur­rík­is sagt það vera rasískt, viðbjóðslegt og ómann­legt. Höfundur ljóðsins Die Stadtratte (Borg­arrott­ur), Christian Schilcher, er aðstoðar­borg­ar­stjóri Braunau am Inn.

Leiðtogi FPÖ og aðstoðarkanslari Austurríkis, Heinz-Christian Strache, segir að Schilcher muni láta af embætti og yfirgefa flokkinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert