Þingi slitið í september

Elísabet Englandsdrottning hefur samþykkt beiðni Boris Johnsons, forsætisráðherra Bretlands, að …
Elísabet Englandsdrottning hefur samþykkt beiðni Boris Johnsons, forsætisráðherra Bretlands, að rjúfa þing í september. AFP

Elísabet Englandsdrottning hefur samþykkt beiðni Boris Johnsons, forsætisráðherra Bretlands, að gera hlé á störfum þingsins í september, aðeins nokkrum dögum eftir að neðri málstofa breska þingsins kemur saman að nýju.

Ákvörðun ríkisstjórnarinnar að óska eftir frestun þings hefur hlotið mikla gagnrýni, meðal annars frá John Bercow, for­seta breska þings­ins, sem segir beiðnina vera stjórnskipulegt hneyksli. 

Þing­fund­ur breska þings­ins hef­ur nú staðið í 250 daga og til­kynnti John­son í bréfi til þing­manna í dag að hann hafi rætt við Elísa­betu drottn­ingu um að slíta þing­fundi í sept­em­ber og hefja störf að nýju 14. októ­ber með stefnuræðu drottn­ing­ar. 

Það hefur nú verið samþykkt og heimilar ríkisstjórninni að fresta þingfundi frá 9. september. Johnson segir ástæðu frestunarinnar vera vegna fjölda lagafrumvarpa sem stjórn hans hyggst leggja fram það sem tekið sé á mörgun mikilvægum málum. Hann þvertekur fyrir að frestunin sé til að koma í veg fyrir umræður um Brexit á þinginu og segir hann stjórnarandstöðuna hafa nægan tíma. 

Þetta merkir að þingmenn hafa rétt rúmar tvær vikur til að ræða breytingar á útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu, en að öllu óbreyttu munu Bretar ganga úr ESB án samnings, 31. október.

Frétt BBC

Fréttin hefur verið uppfærð

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert