Virkar malaríulyfið gegn veirunni?

Skipt­ar skoðanir eru á meðal lækn­is­menntaðra um hvort malaríulyfið Hydroxychloroquine …
Skipt­ar skoðanir eru á meðal lækn­is­menntaðra um hvort malaríulyfið Hydroxychloroquine virki gegn kór­ónu­veirunni, auk þess sem varað hefur verið við aukaverkunum lyfsins. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist vera að taka malaríulyfið Hydroxychloroquine í forvarnaskyni gegn COVID-19. Skipt­ar skoðanir eru á meðal lækn­is­menntaðra um hvort lyfið virki gegn kór­ónu­veirunni, auk þess sem varað hefur verið við aukaverkunum lyfsins. 

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur viðrað áhyggjur sínar af því að fólk sé að taka lyfið að eigin frumkvæði án þess að gera sér grein fyrir mögulegum aukaverkunum. Þá hefur dr. Ant­hony S. Fauci, einn helsti sér­fræðing­ur for­seta Banda­ríkj­anna varðandi far­sótt­ina, beðið fólk um að fara var­lega í að nota lyf­ið þar sem ekki liggi fyr­ir nein staðfest­ing á að það virki á veiruna.

„Hverju hafið þið að tapa?“

Trump hefur ítrekað minnst á lyfið á daglegum blaðamannafundum sínum. „Hverju hafið þið að tapa? Takið það,“ sagði hann á einum slíkum í apríl. Starfsbróðir Trumps í Brasilíu, Jair Bolsonaro, fullyrti í myndskeiði stuttu síðar að lyfið „virkaði í hvívetna“. Myndskeiðið var að vísu fjarlægt af Facebook sökum miðlunar rangra upplýsinga um kórónuveiruna. 

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist vera að taka malaríulyfið hydroxychloroquine í …
Donald Trump Bandaríkjaforseti segist vera að taka malaríulyfið hydroxychloroquine í forvarnarskyni gegn COVID-19. AFP

Rannsóknir eru þegar hafnar sem miða að því að finna út hvort lyfið virki í raun og veru gegn kórónuveirunni. Hydroxychloroquine er malaríulyf í töfluformi og er hitalækkandi og bólgueyðandi. Vonir standa til að lyfið nýtist í baráttunni gegn kórónuveirunni. Rannsóknirnar miða jafnt að því hvort lyfið nýtist sem forvörn gegn veirunni sem og hvort það nýtist sjúklingum sem greinst hafa með COVID-19. 

Prófanir skammt á veg komnar

Prófanirnar eru hins vegar skammt á veg komnar og því vilja vísindamenn ekki fullyrða um virkni malaríulyfsins gegn veirunni. „Við þurfum stærri gæðameiri klínískar prófanir til að geta metið áhrifin betur,“ segir Kome Gbinigie, prófessor við Oxford-háskóla. Þá er einnig þörf á frekari rannsóknum á aukaverkunum lyfsins, svo sem nýrna- og lifrarskaða. 

Bandaríska matvæla- og lyfjastofnunin (FDA) gaf út leyfi í lok mars fyrir notkun lyfsins gegn kórónuveirunni í neyðartilfellum. 24. apríl gaf stofnunin svo út viðvörun á notkun lyfsins vegna aukaverkana á borð við hjartsláttartruflanir. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert