Suðurkóresk þríþrautarkona svipti sig lífi eftir áralangt líkamlegt og andlegt ofbeldi af hálfu þjálfara sinna. Konan hafði kvartað undan hegðun þjálfaranna til íþróttamálayfirvalda sem hundsuðu áhyggjur hennar.
Choi Suk-hyeon, 22 ára, var efnileg þríþrautarkona og vann meðal annars brons í unglingaflokki kvenna á Asíuleikunum í þríþraut árið 2015. Samkvæmt AFP lést Choi á heimavist liðs síns í Busan í síðasta mánuði.
Skjáskot af síðustu smáskilaboðasamskiptum hennar við móður sína hefur farið eins og eldur um sinu á netinu, en Choi biður í skilaboðunum móður sína að „upplýsa um syndir“ ofbeldismannanna.
Samkvæmt suðurkóreskum fjömiðlum tók Choi ofbeldið oft upp á hljóðupptöku. Á upptöku sem sjónvarpsfréttastöðin YTN spilaði má heyra þjálfara hennar reiðast gríðarlega þegar Choi hafði þyngst. „Þú þarft að forðast mat í þrjá daga. Þú lofaðir mér að þú myndir axla ábyrgð,“ sagði þjálfarinn og í kjölfarið heyrist hár smellur.
Choi kvartaði til Íþrótta- og ólympíusambands Suður-Kóreu í apríl og bað um að rannsókn færi fram á málinu. Vinur hennar sagði við fjölmiðla að Choi hefði raunar kvartað við fjölmargar opinberar stofnanir en engin þeirra hefði tekið hana alvarlega.