Ekki séð neina sönnun fyrir eitrun

AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ekki hafa séð neina sönnun fyrir því að eitrað hafi verið fyrir rússneska stjórnarandstæðingnum Alexei Navalní.

„Ég veit ekki nákvæmlega hvað gerðist. Mér finnst þetta sorglegt, þetta er hræðilegt, þetta ætti ekki að gerast,“ sagði Trump á blaðamannafundi í dag.

„Við höfum ekki séð neina sönnun ennþá, en ég mun skoða þetta,“ bætti hann við.

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert