Eitrað fyrir Navalní með Novichok taugaeitri

Alexei Navalny
Alexei Navalny AFP

Eitrað var fyrir rússneska stjórnarandstæðinginn Alexei Navalní með Novichok-taugaeitri að sögn yfirvalda í Þýskalandi. 

Samkvæmt niðurstöðum eiturefnaprófs á sýnum úr Navalní er „ótvírætt“ að honum hafi verið byrlað eitur úr hópi Novichock-taugaeiturs, eftir því sem fram kemur á BBC. 

Navalní var fluttur til Berlínar eftir að hafa veikst skyndilega um borð í flugi frá Síberíu til Moskvu í ágúst. Honum hefur verið haldið sofandi síðan. 

Stuðningsmenn Navalnís fullyrða að eitrað hafi verið fyrir hann með samþykki Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta. Yfirvöld í Kreml hafa neitað ásökununum. 

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, fundaði í dag með embættismönnum um næstu skref málsins. Þá stendur til að funda um niðurstöðu efnaprófsins á vettvangi NATÓ og Evrópusambandsins. 

Novichok er heiti á hópi taugaeiturs sem þróað var í Sovétríkjunum á 8. og 9. áratug síðustu aldar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert