Frakkinn Jean-Luc-Brunel, sem er þekktur sem umboðsmaður fyrirsæta, hefur verið handtekinn í Frakklandi grunaður um ýmis kynferðisbrot. Hann var náinn samstarfsmaður milljarðamæringsins og barnaníðingsins Jeffrey Epstein.
Brunel var handtekinn vegna ásakana um nauðgun, kynferðisbrot gegn aðilum undir lögaldri, mansal og fyrir þátttöku í samsæri, að sögn saksóknara í París.
Hann var handsamaður á flugvellinum Charles de Gaulle í París á leið sinni í flug til Senegals, að sögn heimildarmanns AFP-fréttastofunnar.
Breaking news. Exclusive from @faitsetdocs . #Epstein affair Jean-Luc Brunel was arrested and taken into custody yesterday morning at Paris-Charles de Gaulle airport as he was about to board a flight to Dakar, Senegal. To be continued... pic.twitter.com/jwziXAGBJd
— Faits & Documents (@faitsetdocs) December 17, 2020