Rændu hundruðum skóladrengja

Mynd úr safni af nígerískum hermönnum.
Mynd úr safni af nígerískum hermönnum. AFP

Talið er að hundruðum skóladrengja hafi verið rænt ásamt kennurum sínum af vopnuðum mönnum sem tilheyra glæpasamtökum í Nígeríu.

Árásarmennirnir ruddust inn í heimavist menntaskóla piltanna í bænum Kagara í Mið-Nígeríu seint í gær. Árásarmennirnir, sem voru klæddir í hermannabúninga, smöluðu drengjunum saman og fóru með þá inn í nærliggjandi skóg. 

Alls eru um eitt þúsund drengir í skólanum og er ekki vitað hversu mörgum þeirra var rænt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert