Danir vonast eftir samstarfi við Ísrael

Mette Frederiksen ræddi málin á danska þinginu og að því …
Mette Frederiksen ræddi málin á danska þinginu og að því loknu á blaðamannafundi í dag. AFP

Forsætisráðherra Danmerkur, Mette Frederiksen, er á leið til Ísraels ásamt Sebastian Kurz, forsætisráðherra Austurríkis. Þar stendur til að leiðtogarnir ræði við Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, um samstarf í bóluefnamálum.

Meðal þess sem er til skoðunar er að danska ríkið …
Meðal þess sem er til skoðunar er að danska ríkið eignist hlut í bólefnisverksmiðju í Ísrael. AFP

Fjallað hefur verið um væntanlegt ferðalag Frederiksen í dönskum fjölmiðlum í dag og hún gagnrýnd fyrir að ætla að leggja land undir fót þegar dönsk stjórnvöld hafi varað við utanlandsferðum, en Frederiksen segir erindi ferðarinnar svo mikilvægt að fjarfundur nægi ekki því samhengi. Bólusetningar gangi ekki nógu hratt og að Ísrael hafi augljóst forskot í þeim efnum.

Þá segir forsætisráðherrann hugsanlegt samstarf Dana og Austurríkismanna við Ísrael ekki brjóta gegn bóluefnasamkomulagi Evrópusambandsins. „Maður getur gert nýtt samkomulag þrátt fyrir að maður sé hluti af öðru,“ sagði Frederiksen á blaðamannafundi vegna málsins í dag.

Meðal þess sem er til skoðunar er að danska ríkið eignist hlut í bólefnisverksmiðju í Ísrael, að því er fram kom í svari Frederiksen í umræðum á danska þinginu í dag. Mikilvægast segir hún að framleiðslu bóluefnis verði hraðað.

Frederiksen og Kurz halda til Ísraels á fimmtudag.

Frétt DR

Frétt TV2

Frétt BT

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert