Stefnir Andrési fyrir dómi

Lögfræðingar Virginiu Giuffre segjast nú hafa afhent Andrési Bretaprins stefnu …
Lögfræðingar Virginiu Giuffre segjast nú hafa afhent Andrési Bretaprins stefnu fyrir að hafa beitt hana kynferðisofbeldi. AFP

Lögfræðingar Virginiu Giuffre segjast nú hafa afhent Andrési Bretaprins stefnu fyrir að hafa beitt hana kynferðisofbeldi. 

Giuffre hefur höfðað einkamál gegn prinsinum í New York og þurfti Andrés að fá stefnuna áður en málið getur haldið áfram, að því er fram kemur í umfjöllun BBC. Þá þarf dómari í New York einnig að staðfesta að Andrés hafi fengið stefnuna.

Andrés prins hef­ur verið ákærður fyr­ir að hafa nauðgað og áreitt Virg­iniu Guif­fre þegar hún var und­ir lögaldri og að hann hafi vitað að hún væri fórn­ar­lamb man­sals. Hann neitar sök.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert