Kjörstaðir í Þýskalandi opnuðu klukkan sex í morgun vegna þingkosninga þar í landi.
Marka þær endalok 16 ára valdatíðar Angelu Merkel, Þýskalandskanslara. Hún hefur setið næstlengst í embætti á eftir Helmut Kohl.
Kjörstaðir í Þýskalandi loka klukkan 16 í dag. Samkvæmt síðustu skoðanakönnun höfðu Sósíaldemókratar (SPD) með frambjóðandann Olaf Scholz naumt forskot á íhaldsbandalag Merkel, CDU og CSU með Armin Laschet í fararbroddi.