Flemming Mogensen, sem var ákærður fyrir að hafa myrt Freyju Egilsdóttur Mogensen 29. janúar, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Hann játaði í morgun fyrir dómi að hafa myrt Freyju.
Árið 1996 hlaut Flemming tíu ára dóm fyrir að drepa tvítuga barnsmóður sína þegar sonur þeirra, Alex, var aðeins tveggja ára.
Flemming sagði fyrir dómi í morgun að hann hefði ekki fengið þá hjálp sem hann þurfti eftir að hann framdi fyrra morðið.
„Mér finnst eins og ég hafi ekki verið tekinn nógu alvarlega, þegar ég ræddi við geðlækna og lækna,“ sagði Flemming.
Alex, sonur Flemmings, sagði í nýrri heimildarmynd hann vera skapmikinn og lítið þyrfti til að hann missti stjórn á skapi sínu.
Alex sagðist gjarnan vilja vita hvað var á seyði í höfði föður síns áður en hann myrti Freyju, hvort hann hefði skipulagt morðið eða hvort það hefði verið framið í stundarbrjálæði. Einnig sagði hann að faðir sinn og Freyja hefðu rifist mikið.