Særðust í skotárás í Þýskalandi

Þýskur lögreglumaður að störfum. Myndin er úr safni.
Þýskur lögreglumaður að störfum. Myndin er úr safni. AFP

Þó nokkrir eru særðir eftir að byssumaður hóf skotárás inni í fyrirlestrarsal í Heidelberg-háskóla í vesturhluta Þýskalands, að sögn lögreglunnar. Árásarmaðurinn er látinn.

„Einn árásarmaður særði þó nokkra í fyrirlestrarsal með byssu. Árásarmaðurinn er látinn,“ sagði lögreglan í Mannheim í yfirlýsingu.

Á Twitter bætti lögreglan við lögregluþjónar hafi verið kallaðir á háskólasvæðið Neunheimer Feld vegna árásarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert