Starfsfólk á Heathrow hættir við verkfallsaðgerðir

Miklar tafir hafa verið á flugstöð Heathrow síðustu vikur vegna …
Miklar tafir hafa verið á flugstöð Heathrow síðustu vikur vegna m.a. manneklu. AFP

Starfsfólk sem afgreiðri eldsneyti á Heathrow-flugvelli í London hætti við fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir vegna launa á elleftu stundu í dag.

Blika af góðum fréttum af Heathrow

Um rætt verkfall hefði vafalaust truflað flugferðir frá fimmtudegi til sunnudags á stærsta flugvelli Bretlands. Tilkynningin er sjaldgæf blika af góðum fréttum fyrir farþega sem ferðast um flugvöllinn, en völlurinn einkennist nú þegar af miklum töfum og takmörkunum á farþegafjölda vegna manneklu.

Í yfirlýsingu sagði stéttafélagið Unite að í kjölfar samningaviðræðna sem haldnar voru hjá sáttaþjónustunni ACAS á miðvikudaginn hafi „verulega bætt tilboð verið gert og í kjölfarið hætti Unite við verkfallsaðgerðirnar til að leyfa félagsmönnum sínum að greiða atkvæði um nýja tilboðið“.

Hefði haft áhrif á þónokkur félög

Verkfall starfsmanna Aviation Fuel Services hefði haft áhrif á Virgin Atlantic, United, Singapore, KLM, American, Emirates, Air France og Delta flug sem nýta sér þjónustu félagsins.

Stéttarfélagið sagði áður að þessir starfsmenn hefðu ekki fengið launahækkun í þrjú ár og á þessum tíma lækkuðu tekjur þeirra um 15,5 prósent að raungildi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert