Keilir kaupir fasteignir á Keflavíkurflugvelli

Fyrrverandi varnarsvæði á Keflavíkurflugvelli.
Fyrrverandi varnarsvæði á Keflavíkurflugvelli.

Keilir keypti í dag byggingar á fyrrum varnarsvæði af Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar. Um er að ræða tvö hús ásamt byggingarlóðum á starfssvæði Þróunarfélagsins, annars vegar skólabyggingu sem áður hýsti menntaskóla varnarliðsins og hins vegar leikskóla. Báðar eru byggingarnar í kjarna þess svæðis sem sem skipulagt er undir þekkingarsamfélag Keilis.

Keilir hóf nú í haust kennslu í frumgreinadeild en að ári liðnu er stefnt að kennslu bæði á háskólastigi sem og í starfsgreinadeild skólans.

Heildarvirði samningsins er 320 milljónir króna. Gert er ráð fyrir töluverðum endurbótum á skólahúsnæðinu til að samræma það þeirri starfsemi sem Keilir stendur fyrir. Í leikskólanum er þegar rekinn leikskóli með yfir 70 börnum á vegum Hjallastefnunnar.

Í tilkynningu segir, að með kaupunum tryggi Keilir sér framtíðarkennsluhúsnæði og lóð til þróunar og vaxtar sem duga eigi fyrirtækinu næstu áratugi, en menntaskólinn er um 5400 fermetrar að stærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert