Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald

Hluti af verksmiðjunni, sem var lokað í gær. Myndin er …
Hluti af verksmiðjunni, sem var lokað í gær. Myndin er tekin af vef lögreglunnar.

Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 30. október í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á ætlaðri framleiðslu fíkniefna í Hafnarfirði.

Um er að ræða mann, sem sem handtekinn var þegar hann kom til landsins frá útlöndum. 

Tveir menn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gær, sömuleiðis til 30. október, vegna rannsóknar sama máls.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert