Einn laus úr haldi

Lögreglan við amfetaverksmiðjuna í Hafnarfirði
Lögreglan við amfetaverksmiðjuna í Hafnarfirði mbl.is/Júlíus

Karl á þrítugsaldri er laus úr haldi lögreglu en hann var handtekinn á Keflavíkurflugvelli 16. október í tengslum við rannsókn á ætlaðri framleiðslu fíkniefna í Hafnarfirði. Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald daginn eftir og síðan í áframhaldandi gæsluvarðhald en er nú laus úr haldi, eins og fyrr segir.

Tveir menn, annar á þrítugsaldri og hinn á fertugsaldri, sitja hinsvegar enn í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar sama máls.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert