Lekinn var frá Hamilton

Alexander Hamilton var sökkt var með tundurdufli þann 29. janúar …
Alexander Hamilton var sökkt var með tundurdufli þann 29. janúar árið 1942.

Staðfesting hefur fengist á að flak það sem fannst á hafsbotni í norðvestanverðum Faxaflóa er bandaríska varðskipið USCGC Alexander Hamilton sem sökkt var með tundurdufli þann 29. janúar árið 1942, skipið var fyrsta skip bandaríska flotans sem var sökkt á Norður Atlantshafi eftir árásin á Pearl Harbor þann 7. desember 1941.

Fyrirtækið Hafmynd sem annast hefur eftirvinnslu gagna hefur sent út niðurstöðu rannsóknarinnar sem hófst þegar olíubrák frá flakinu greindist í flugi TF-Sifjar, eftirlitsflugvélar Landhelgisgæslunnar í byrjun júlí.

Í frétt frá Landhelgisgæslunni segir að frá upphafi hafi verið ljóst að mengunin átti upptök sín á hafsbotni. Farið var um svæðið með fjölgeislamæli sjómælingabátsins Baldurs sem sýndi þúst á hafsbotninum eða á 90 m dýpi sem var 8 m há, 97 m löng og 13 m breið. Í framhaldinu gerði Landhelgisgæslan út leiðangur í samstarfi við fyrirtækin Hafmynd Gavia og köfunarþjónustu Árna Kópssonar til að auðkenna flakið þar sem notast var við fjarstýrðan kafbát og neðansjávarmyndavél.

Sem fyrr segir er nú úrvinnslu gagna lokið, þegar þau eru borin saman við teikningar og myndir sem borist hafa frá bandarísku strandgæslunni er staðfest að flakið er Alexander Hamilton.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert