Skýrslan tefst enn

Í rannsóknarnefndinni sitja Sigríður Benediktsdóttir, Páll Hreinsson og Tryggvi Gunnarsson.
Í rannsóknarnefndinni sitja Sigríður Benediktsdóttir, Páll Hreinsson og Tryggvi Gunnarsson. Ómar Óskarsson

Skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis er að vænta um eða eftir páska, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Skýrslan átti upphaflega að koma út í nóvember en þá var útgáfu hennar frestað fram í febrúar. Útgáfu hennar var svo aftur frestað en nú þykir ljóst að hún kemur ekki út fyrr en í kringum páska, að því er segir í Fréttablaðinu í dag.

Komið hefur fram að prentaða skýrslan er í níu bindum, rúmar tvö þúsund síður, og verður prentuð í um þrjú þúsund eintökum. Þegar er byrjað að prenta viðauka skýrslunnar en þeir snúa meðal annars að siðferði, fjölmiðlum og hagsögu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert