Opnað fyrir skattframtöl

skattur.is

Opnað hefur verið fyrir vefframtal einstaklinga á vefnum www.skattur.is. Einnig er hægt að ganga frá umsókn um frest til að skila framtali. Mikill meirihluti landsmanna gengur frá skattaskýrslu á rafrænu formi.

Frestur til að skila skattframtali einstaklinga rennur út 23. mars, en þeir sem óska eftir fresti eiga að ljúka við framtal í síðasta lagi 29. mars.

Búið er að skrá mikið af upplýsingum inn á framtalið fyrirfram. Fyrir mjög marga framteljendur er aðeins nauðsynlegt að opna framtalið og fullvissa sig um að upplýsingar sem þar eru að finna séu réttar áður en framtalið er sent áfram til skattayfirvalda.

Á skattur.is er hægt að sinnt nánast öllum samskiptum við skattyfirvöld s.s. að telja fram, fá afrit og skoða álagningarseðla.

skattur.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert