Stuðningur við fórnarlömb jarðskjálftans

Rakel Brynjólfsdóttir landsmótsstjóri og Toshiki Toma prestur innflytjenda, en hann …
Rakel Brynjólfsdóttir landsmótsstjóri og Toshiki Toma prestur innflytjenda, en hann er tengiliður við samtökin Hearts of Gold í Japan, afhentu Jónasi Þ. Þórissyni framlagið.

Jónas Þ. Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, tók fyrir helgi á móti peningum sem söfnuðust á landsmóti Æskulýðssambands þjóðkirkjunnar á Selfossi í lok október á síðasta ári og sem æskulýðsfélög hafa safnað í eigin fjáröflunum. Búið er að senda peningana, tæpar 240.000 krónur, til samtakanna Hearts of Gold í Japan sem ætla að nota þá til að styðja við börn í Fukushima sem misstu foreldra sína í hamförunum í Japan eftir jarðskjálftann mikla 11. mars í fyrra og flóðunum sem fylgdu í kjölfarið og sprengingunum í kjarnorkuverinu í Fukushima.

 Rakel Brynjólfsdóttir landsmótsstjóri og Toshiki Toma, prestur innflytjenda, en hann er tengiliður við samtökin Hearts of Gold í Japan, afhentu Jónasi Þ. Þórissyni framlagið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert