Bæjarstjórinn er bjartsýnn

Grímsstaðir á Fjöllum.
Grímsstaðir á Fjöllum.

„Ég er bjartsýnn á að af þessu verði. Þetta snýst um að byggja hótel úti á landi og við vonum að af því verði,“ segir Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings, um fjárfestingar Huang Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum.

Eftir að innanríkisráðherra hafnaði umsókn Huang um að fá undanþágu frá lögum um kaup útlendinga á landi var atvinnuþróunarfélögunum í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu falið að kanna hvort sá möguleiki væri í stöðunni að sveitarfélög á norður- og austurlandi keyptu jörðina og leigðu hana til félags í eigu Huang Nubo. Atvinnuþróunarfélögin hafa nú skilað útfærslu á því með hvaða hætti sveitarfélög gætu komið að málinu.

Bergur Elías segir að þetta mál hafi verið rætt tvisvar í sveitarstjórn, en hún muni ekki taka efnislega afstöðu til þess fyrir en búið er að leggja tillögurnar fram og ræða þær.

Rætt hefur verið um að sveitarfélögin stofni hlutafélag sem kaupi ríflega 70% hlut í Grímsstöðum. Lagt er til að íslenskt félag Huang Nubos leigi landið til 40 ára og greiði leigufé fyrirfram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert