Halldóra Ísleifs í stöðu prófessors

Halldóra Ísleifsdóttir.
Halldóra Ísleifsdóttir.

Halldóra Ísleifsdóttir hefur tekið við stöðu prófessors í grafískri hönnun við hönnunar- og arkitektúrsdeild Listaháskóla Íslands. Ráðningin er gerð á grundvelli hæfismats til stöðu háskólakennara frá 2009 og á forsendum þeirra verka sem hún hefur unnið á sínu sviði síðan þá, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

 Halldóra hefur mikla og fjölbreytta reynslu á sviði grafískrar hönnunar auk langrar reynslu af háskólakennslu á því sviði. Hún hefur starfað sem grafískur hönnuður, hönnunarstjóri og listrænn stjórnandi á hönnunarstofum og einnig starfað sjálfstætt sem myndlistarmaður, hugmyndasmiður og ráðgjafi. Þá hefur hún stýrt verkefnum í grafískri hönnun, markaðssetningu og nýsköpun og setið í ýmsum dómnefndum og ráðgjafarnefndum á þeim sviðum.  Í álitsgerð dómnefndar er tekið fram að Halldóra sé „djarfur og frumlegur hönnuður með listræna sýn á greinina.“

Halldóra hóf störf sem stundakennari við Listaháskólann árið 1999 og tók  við starfi fagstjóra grafískrar hönnunar 2006. Síðan 2009 hefur hún gegnt starfi háskólakennara með starfsheiti lektors.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert