Lykilatriði að minnka umsvif OR

Hanna Birna Kristjánsdóttir
Hanna Birna Kristjánsdóttir mbl.is/RAX

Breyta þarf lögum um Orkuveitu Reykjavíkur þannig að fyrirtækið hafi ekki svo rúmar heimildir til athafna utan kjarnastarfseminnar. Þetta segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík, eftir úttektina á OR sem birt var í dag. „Lykilatriðið er að minnka fyrirtækið og tryggja að það komi sér út úr öllum þeim verkefnum sem ekki tengjast grunnþjónustu við íbúa,“ segir Hanna Birna. 

Aðspurð segir hún niðurstöður nefndarinnar ekki koma á óvart. „Mjög margt af því sem kemur fram í þessari skýrslu er í samræmi við það sem borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur talað um í langan tíma.“ Borgarstjórn Reykjavíkur hafi varið undanförnum tæpum 5 árum í að vinda ofan af þeim fortíðarvanda sem skýrslan lýsi. 

Þáttaskil með REI-málinu

„Skýrslan lýsir mjög vel, finnst mér, því andrúmslofti sem var í samfélaginu og þeirri stemningu sem virtist ríkja innan fyrirtækisins: Að ganga til verka á grundvelli þess að menn gætu hagað sér eins og þeir væru að reka einkafyrirtæki, en ekki opinbert fyrirtæki. Það var ekki fyrr en með REI-málinu að eigendurnir spyrntu við fótum og sögðu að svona gæti þetta ekki gengið lengur,“ segir Hanna Birna. 

Eftir REI-málið hafi orðið þáttaskil, líkt og bent sé á í skýrslunni. „Það varð mikil samstaða um að þessi menning sem var ríkjandi í Orkuveitu Reykjavíkur gæti ekki ríkt áfram og það tóku allir borgarfulltrúar höndum saman um að breyta því.“ Ramminn um OR hafi því orðið skýrari og tekið á rekstrinum.

Ekki á leiðinni á hausinn

Hanna Birna segir það ánægjuefni sem fram kemur í skýrslunni, að þrátt fyrir vandann hafi tekjur fyrirtækisins alltaf nægt fyrir gjöldum þess og orkuveitan greitt sínar skuldir. „Þannig að þessir þungu dómar sem hafa verið felldir um fyrirtækið, um að það væri á leiðinni á hausinn, skýrslan er mjög afdráttarlaus um að það eigi ekki við rök að styðjast. Aðferðir síðustu ára hafa sem betur fer skilað okkur á betri stað.“

Úttektin kallar þó á enn frekari viðbrögð að mati Hönnu Birnu, sem segir nauðsynlegt að hugað verði að lagaumgjörð Orkuveitunnar. Fyrirtækið hafi of rúmar heimildir til að athafna sig utan kjarnastarfseminnar. „Með sama hætti verður að takmarka það sem forstjóri og stjórnendur geta gert án heimilda frá stjórn.“

Lýðræðislegt aðhald nauðsynlegt

Úttektarnefndin leggur til í skýrslunni að stjórn OR verði ekki lengur skipuð stjórnmálamönnum. Hanna Birna er ekki sannfærð um að þetta sé lausnin og bendir á að það hafi ekki verið fyrr en tekið var fast á málunum, í umboði kjósenda, sem hlutirnir breyttust. Það orki tvímælis að segja að stjórnin eigi ekki að vera skipu stjórnmálamönnum, en segja um leið að hún þurfi að veita lýðræðislegt aðhald.

„Ef við viljum breyta skipun stjórnar Orkuveitunnar verður það samt að vera gert þannig að lýðræðislegt aðhald sé tryggt. Þetta er fyrirtæki í opinberri eigu og það verður að vera opinbert og lýðræðislegt aðhald með því.“

Orkuveita Reykjavíkur
Orkuveita Reykjavíkur mbl.is/ÞÖK
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert