Íslendingum fjölgaði um 1.230

Í lok 4. ársfjórðungs 2012 bjuggu 321.890 manns á Íslandi, 161.440 karlar og 160.450 konur. Landsmönnum fjölgaði um 1.230 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 21.470 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 205.740 manns.

Þann 1. janúar 2012 bjuggu 319.575 á Íslandi en í árslok voru þeir 321.890. Alls hefur landsmönnum fjölgað um 2.315 á síðasta ári.

Á 4. ársfjórðungi 2012 fæddust 1.110 börn, en 490 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 630 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 5 umfram brottflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 620 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

260 fluttu til Noregs á þremur mánuðum

Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 260 manns á 4. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 430 íslenskir ríkisborgarar af 650 alls. Af þeim 340 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 120 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (220), Noregi (170) og Svíþjóð (100), samtals 490 manns af 660. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 360 til landsins af alls 970 erlendum innflytjendum. Bandaríkin komu næst, en þaðan fluttust 70 erlendir ríkisborgarar til landsins, samkvæmt frétt á vef Hagstofu Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert