Óvenjulegt hríðarveður

Samgöngur röskuðust víða í gær, einkum á höfuðborgarsvæðinu.
Samgöngur röskuðust víða í gær, einkum á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Ómar

Veðurstofa Íslands segir að óveðrið í gær hafi verið óvenjulegt fyrir þær sakir að snjókoma og hvasst hafi verið í öllum landshlutum á sama tíma.

Veðrið í dag hefur verið rysjótt víðast hvar, að því er segir á vef Veðurstofunnar.

Veðurhorfur á landinu klukkan fjögur síðdegis svohljóðandi: Austan 15-23 m/s, hvassast við suðurströndina. Dálítil snjókoma og slydda með köflum og rigning syðst, en skafrenningur norðaustanlands. Hiti víða 0 til 5 stig, en frost 1 til 5 stig norðaustantil.

Áfram er búist við slæmu ferðaveðri vegna slyddu, snjókomu og skafrennings og fólk er hvatt til að fylgjast vel með veðurspám.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert