Foxy Ladies draggdrottingar Íslands

Krýningarathöfnin í Hörpu. Frá vinstri: Brjánn Hróðmarsson, Foxy Ladies og …
Krýningarathöfnin í Hörpu. Frá vinstri: Brjánn Hróðmarsson, Foxy Ladies og Diva Jackie Dupree mbl.is/Ómar Óskarsson

Dúettinn Foxy Ladies var krýndur draggdrottingar á Draggkeppni Íslands, sem fram fór í Eldborgarsal Hörpunnar í kvöld. Dúettinn samanstendur af þeim Márky Cántalejo og Chris Mercado.

Brjánn Hróðmarsson var krýndur draggkóngur, en Brjánn er sviðsnafn Ylfu Lindar Gylfadóttur.

Ellefu tóku þátt í keppninni, fimm karlmenn og sex konur, þar af þrír dúettar.

Kynnir kvöldsins var Diva Jackie Dupree.

Keppnin er haldin í tengslum við Hinsegin daga, en gleðigangan verður farinn á laugardaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert