Vefsíðan Silkroad tekin niður

Skjáskot af Silkroad

Rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur frá því um miðjan maí aðstoðað  bandarísk yfirvöld við rannsókn á starfsemi vefsíðunnar Silkroad sem hýsti markaðssvæði með ólögleg fíkniefni og aðra ólögmæta starfssemi.

Aðstoðin var veitt á grundvelli réttarbeiðni og  fólst í öflun rafrænna gagna um vefsíðuna sem hýst var hér á landi. Lauk þessari rannsóknaraðstoð með aðgerðum hér á landi í síðustu viku þar sem Silkroad vefsíðan var tekin niður og haldlagður rafrænn gjaldmiðill, Bitcoin, að jafnvirði yfir 3 milljónir bandaríkjadala. 

Ekki eru önnur tengsl við Ísland  en þau að vefsíðan var hýst hér á landi, engar handtökur voru framkvæmdar vegna þessa hér á landi og engir innlendir aðilar tengjast að öðru leyti rekstri hennar. Rannsókn málsins er á forræði FBI og er öllum fyrirspurnum vísað þangað. Frekari upplýsingar um málið verða ekki veittar af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í fréttatilkynningu frá lögreglunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert