Tillögurnar féllu í grýttan jarðveg

ASÍ Alþýðusamband Íslands
ASÍ Alþýðusamband Íslands mbl.is/Hjörtur

Á fundi miðstjórnar ASÍ í dag voru tillögur hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar ræddar og var þungt hljóð í mönnum. Miðstjórninni þykir það skjóta skökku við að á meðan ríkisstjórnin ræðir við forystu verkalýðshreyfingarinnar um sátt og samstarf á vinnumarkaði sé nefnd á vegum þeirrar sömu ríkisstjórnar að vinna að breytingum á kjarnaþáttum á vinnumarkaði. Sumar tilagnanna eru meðal annars komnar í farveg innan ráðuneytanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ.

„Þó ASÍ telji tækifæri til að breyta ýmsu í stofnanaumgjörð vinnumarkaðarins þá er hér of langt gengið,“ segir í tilkynningunni. Tillögur hópsins um breytingar á skipulagi lykilstofnana vinnumarkaðarins á borð við Fæðingarorlofssjóð, Vinnumálastofnun og Vinnueftirlit, hugmyndir um breytingar á framlögum til jöfnunar lífeyrisréttinda, réttinda þeirra sem missa vinnuna til atvinnuleysisbóta eða á fyrirkomulagi starfsendurhæfingar gengur þvert á vilja verkalýðshreyfingarinnar og er ekki gæfulegt innlegg í þær kjaraviðræður sem fara í hönd.

Miðstjórn ASÍ krefst þess að ekki verði hróflað við þessum kjarnaþáttum vinnumarkaðarins án samráðs, segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert