Stefna á miðin fyrir Suðurlandi

Vilhelm Þorsteinsson EA 11, Börkur NK 122 og Ingunn AK …
Vilhelm Þorsteinsson EA 11, Börkur NK 122 og Ingunn AK 150 utan brúar í Kolgrafafirði undir Bjarnarhafnarfjalli fyrir nokkru. mbl.is/Börkur kjartansson

Nokkur síldveiðiskipanna settu í gær strikið á mið undan Suðausturlandi.

Skipverjar á rannsóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni urðu varir við talsvert af síld þar í fyrrinótt, en skipið er í síldarleiðangri þar sem verkefnið er að mæla magn og útbreiðslu síldarinnar.

Síldin fyrir austan er smærri en í Breiðafirði, en eigi að síður talin góð til vinnslu. Undan Suður- og Suðausturlandi hafa yngri árgangar síldarinnar haft vetrarstöðvar að verulegu leyti síðustu ár.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert