Hópmálsókn gegn Vodafone

Vodafone í Skútuvogi
Vodafone í Skútuvogi Ómar Óskarsson

Hópur fólks hefur stofnað málsóknarfélag til að sækja sameiginlega í einu dómsmáli skaðabætur á hendur Vodafone vegna upplýsingaleka af vef félagsins hinn 30. nóvember 2013.

Félagið hefur þann tilgang að höfða dómsmál til að fá bætt tjón félagsmanna vegna lekans. Dómsmálið skal félagið reka í eigin nafni fyrir hönd félagsmanna og í umboði þeirra. Nöfn félagsmanna verða ekki birt í dómsniðurstöðu, að því er segir á vef félagsins.

Málsóknarfélagið hefur ráðið lögmannsstofuna Lögvernd ehf. og Skúla Sveinsson hdl. sem lögmann félagsins til að annast fyrirhugaðan málarekstur á hendur Vodafone. Hvorki lögmannsstofa né lögmaður þess hafa áskilið sér þóknun fyrir störf sín né endurgreiðslu útlagðs kostnaðar nema málsóknarfélaginu áskotnist fé af málarekstrinum. Engin félagsgjöld þarf að greiða né eru innheimt gjöld vegna umsóknar, aðilar eða úrsagnar úr félaginu.

Málsóknarfélagið hefur látið rita lögfræðilega álitsgerð vegna lekans. Tilgangur álitsgerðarinnar er að varpa ljósi á hvort Vodafone beri skaðabótaábyrgð á tjóni vegna hans.

„Allir þeir sem telja sig hafa orðið fyrir tjóni vegna lekans eða hafa ástæðu til að ætla að gögn um þá hafi lekið út af vef Vodafone hinn 30. nóvember 2013 eru hvattir til að sækja um aðild að málsóknarfélaginu. Tjón vegna lekans er ekki aðeins bundið við þá aðila sem sent höfðu SMS-skeytin heldur varðar einnig þá sem móttekið höfðu skeytin. Auk þess kunna aðrir aðilar sem auðkenndir hafa verið með einhverjum hætti í umræddum skeytum að hafa orðið fyrir tjóni vegna lekans,“ segir á vef félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert