Fá ekki að leita til EFTA

Mótmælendur í Gálgahrauni.
Mótmælendur í Gálgahrauni. Eggert Jóhannesson

Hæstiréttur hefur staðfest Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að hafna beri kröfu fernra náttúrverndarsamtaka um að leita ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins vegna framkvæmda við Álftanesveg. Áður hefur samskonar kröfu verið hafnað í máli varðandi lögbannskröfu samtakanna vegna vegarlagningarinnar.

Tvö dómsmál eru í gangi vegna Álftanesvegar. Annars vegar mál þar sem Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands, Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands og Hraunavinir vilja fá hrundið ákvörðun sýslumanns um að synja lögbanni, en sýslumaður vísaði lögbannskröfu frá á þeirri forsendu að samtökin ættu ekki lögvarða hagsmuni og því ekki aðild að málinu. Samtökin höfðuðu dómsmál til að fá ákvörðuninni hnekkt. Í því máli var farið fram á að fá ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins en héraðsdómur og Hæstiréttur höfnuðu því.

Hitt málið snýst um vegarlagninguna sjálfa og lögmæti hennar á þeim grundvelli að umhverfismat og framkvæmdaleyfi séu ekki gild. Í því máli var einnig óskað ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert