Bændur fundu brennisteinslykt

Svona leit Múlakvíslin út í kvöld, vatnsmeiri en venjulega og …
Svona leit Múlakvíslin út í kvöld, vatnsmeiri en venjulega og leyndi sér ekki að að það var hlaupvatn. Ljósmynd/Jónas Erlendsson

Vísindamenn flugu með þyrlu Landhelgisgæslunnar yfir Kötlu í kvöld, þar sem líkur eru taldar á að nýir sigkatlar hafi myndast í Mýrdalsjökli. Lítið sást þó vegna lélegs skyggnis. Töluverð brennisteinslykt er af Múlakvísl að sögn bænda í Mýrdal og augljóst að hlaupvatn er í ánni.

Þegar hlaup koma undan sigkötlum í jökli bræðir jarðhiti jökulinn og vatn safnast fyrir, sem hleypur svo fram stundum með miklum látum. Slíkt er nokkuð þekkt í Kötlu, en virknin hefur ekki verið þess eðlis að ástæða sé til að hafa áhyggjur af gosi eða stóru hlaupi.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra lýsti engu að síður yfir óvissustigi í dag, þar sem ekki er hægt að útiloka að stærri flóð komi skyndilega, og verður viðbragðstími þá mjög skammur.

Brennisteinslykt barst um Mýrdalinn

„Snemma í morgun fann maður úti á hlaði mjög sterka brennisteinslykt og ég hef heyrt frá Mýrdælingum hér víða sem hafa fundið brennisteinslykt,“ segir Jónas Erlendsson, fréttaritari mbl.is og Morgunblaðsins og bóndi í Fagradal.

Að sögn Jónasar er töluvert meira vatn í Múlakvísl og auðséð að þar er ekkert leysingavatn á ferðinni. „Það leynir sér ekki að þetta er hlaupvatn og það er töluvert mikil brennisteinslykt af ánni.“

Þrjú ár eru á morgun síðan hringvegurinn fór í sundur þegar stórt hlaup hófst í ánni úr fjórum kötlum syðst í Mýrdalsjökli. Smíði nýrrar brúar, í stað þeirrar sem gaf sig undan straumnum, er fyrst að ljúka nú og var umferð hleypt á hana í fyrsta sinn í síðustu viku.

Skammtímabrúin sem sett var upp á methraða á sínum tíma stendur enn um sinn, en í dag fjarlægðu sérfræðingar Veðurstofunnar vatnshæðar- og rafleiðnimæla sem voru á gömlu brúnni og færðu þá á þá nýju.

Hættulegar lofttegundir geta borist frá ánni

Hlaupið sem nú er í ánni telst minniháttar og ekki er búist við að það verði neitt í líkingu við hlaupið 2011. Rafleiðni í ánni hefur farið vaxandi frá aðfaranótt laugardagsins 5. júlí, bæði í Múlakvísl og jökulsá á Sólheimasandi, og er líkleg orsök talin leki úr jarðhitakerfum undir Mýrdalsjökli.

Brennisteinsvetni berst frá báðum ám og segir Veðurstofa Íslands rétt að gæta varúðar í nánd þeirra, vegna hættulegra lofttegunda. Ferðafólki er því ráðið frá því að stoppa við árnar.

„Við þess­ar aðstæður get­ur mikið magn hættu­legra gas­teg­unda or­sakað ert­ingu í slím­húð og aug­um sem og tap á lykt­ar­skyni. Í ein­staka til­vik­um get­ur þetta leitt til yf­irliðs vegna súr­efn­is­skorts. Þetta á sér­stak­lega við þar sem ár koma und­an jökl­um og því rétt að hafa var­ann á,“ skrif­ar sér­fræðing­ur Veður­stof­unn­ar.

Veðurstofa Íslands hefur annast eftirlit með flóðum og flóðaviðvaranir frá árinu 2009 og eru þar nokkrir starfsmenn í fullu starfi við vatnsmælingar. Vöktunarkerfið streymir gögnum frá mælistöðvum á rauntíma, greinir þau, birtir og sendir út viðvaranir með sjálfvirkum hætti ef þörf krefur.

Sérfræðingar í vatnamælingum hjá Veðurstofu Íslands fóru að Múlakvísl í …
Sérfræðingar í vatnamælingum hjá Veðurstofu Íslands fóru að Múlakvísl í kvöld og færðu mæla af gömlu brúnni yfir á þá nýju. Ljósmynd/Jónas Erlendsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert