Dívur og dýfur í Sundhöllinni

mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Hinsegin dagar stóðu í kvöld fyrir viðburðinum Dívur og dýfur í Sundhöll Reykjavíkur þar sem var hægt að fylgjast með - dívum og dýfum. Á meðal díva voru tónlistarfólkið Elín Ey, Helga Möller, Felix Bergsson og Jósefín Winter. Þau stigu á stokk á meðan sundfólk í höllinni sá um dýfurnar. 

Svo skemmtilega vildi til að einkennisfáni hátíðarinnar, regnbogafáninn, birtist af náttúrunnar hendi fyrir ofan Sundhöllina í kvöld, gestum til mikillar gleði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert