Aðgangur fyrir vísindamenn og fjölmiðla

Hraungosið í Holuhrauni
Hraungosið í Holuhrauni mbl.is/Árni Sæberg

Í gær var ákveðið að rýma svæðið næst gosstöðvunum og setja upp innri lokun þar við.  Þetta var gert vegna mikils óróa sem kom fram á mælum og ekki var hægt að staðsetja eða útskýra með vissu.  Óróinn gekk niður í gærkvöldi og hefur ekki orðið vart aftur í sama mæli og í gær.

Lögreglustórinn á Húsavík, í samvinnu við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, hefur ákveðið að aflétta innri lokun og munu vísindamenn og fjölmiðlar á svæðinu geta farið aftur að gosstöðvunum.  Þetta er gert með þeim fyrirvara að það gæti komið til þess að rýma aftur ef aðstæður breytast. Sem fyrr á þessi aðgangsheimild einungis við um vísindamenn og fjölmiðlafólk.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert