Tilfinningaríkur fundur Bjartrar framtíðar

Björt framtíð fundar í Snarfara.
Björt framtíð fundar í Snarfara. Þórður Arnar Þórðarson

Félagsfundi Bjartrar framtíðar sem haldinn var í Snarfarasalnum í kvöld lauk rétt í þessu, en samkvæmt tilkynningu var hann tilfinningaríkur og hreinskiptinn. Segir þar að flokksmenn ætli að taka sér nokkra daga til að skoða tillögu um breytt skipulag, sem talsvert hefur verið í umræðunni eftir að formaður flokksins, Guðmundur Steingrímsson, lagði til breytingar á mánudaginn.

Unnsteinn Jóhannsson, upplýsingafulltrúi flokksins, sagði í samtali við mbl.is nú í kvöld að minnst hefði verið rætt um þessa tillögu á fundinum, en margt annað verið á dagskrá. Hann vildi að öðru leyti ekkert tjá sig um það sem fram kom á fundinum og sagði að næstu daga yrði unnið nánar í tillögunni um breytt skipulag en annars óskaði hann eftir að félagsmenn fengju svigrúm til að hvíla sig.

Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar.
Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar. Þórður Arnar Þórðarson
Félagsmenn koma til fundarins fyrr í kvöld.
Félagsmenn koma til fundarins fyrr í kvöld. Þórður Arnar Þórðarson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert