Rannsókn á fjárkúgunum langt komin

Lögreglustöðin Hverfisgötu
Lögreglustöðin Hverfisgötu mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Rann­sókn á tveimur fjár­kúg­un­ar­málum sem komu upp fyrr í sumar er langt komin en er enn ólokið. Að sögn Friðriks Smára Björg­vins­son­ar, yf­ir­lög­regluþjóns hjá lög­regl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu gengur vel að rannsaka málin en erfitt er að segja til um hvenær rannsókn lýkur. Önnur fjárkúgunin beind­ist að for­sæt­is­ráðherra.

Eins og fram hef­ur komið hand­tók lög­regl­an á höfuðborg­ar­svæðinu syst­urn­ar Hlín Ein­ars­dóttt­ur og Malín Brand í tvígang. Fyrst eft­ir að þær gerðu til­raun til að kúga fé af Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráðherra en hann fékk bréf sent heim til sín þar sem pen­inga var kraf­ist í skipt­um fyr­ir þag­mælsku.

Nokkr­um dög­um síðar voru syst­urn­ar kærðar fyr­ir aðra fjár­kúg­un. Karl­maður kærði þær fyr­ir að hafa haft af sér 700 þúsund krón­ur. Syst­urn­ar sögðu þá pen­inga vera miska­bæt­ur vegna nauðgun­ar en maður­inn á að hafa nauðgað Hlín. Eft­ir að maður­inn kærði fjár­kúg­un­ina kærði Hlín hann fyr­ir nauðgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka