Veltir upp hvort ráðherra eigi að hafa svigrúm

Ólöf Nordal innanríkisráðherra á Alþingi.
Ólöf Nordal innanríkisráðherra á Alþingi. mbl.is/Ómar Óskarsson

Ólöf Nordal, innanríkisráðherra, segir að ástæða geti verið til að endurskoða lög um skipan í embætti hæstaréttardómara. Sem stendur hafi ráðherra þá kosti að fara að ráðgjöf fimm manna dómnefndar, eða senda málið til kasta Alþingis.

„Mér er spurn hvort ástæða sé fyrir því að velta því upp hvort ráðherra hafi meira svigrúm til að velja umsækjenda,“ segir Ólöf. Hún segir að allir umsækjendurnir hafi verið hæfir en Karl Axelsson var valinn umfram þau Ingveldi Einarsdóttur og Davíð Þór Björgvinsson.

„Í þjóðfélaginu geta verið margvísleg sjónarmið sem mönnum finnst ekki endurspeglast í réttinum. Á ráðherra þá ekki að geta haft eitthvað svigrúm til þess að velja úr tveimur jafn hæfum einstaklingum. Mér finnst það vera sjónarmið sem ástæða er til að velta upp í ljósi þeirrar fimm ára reynslu sem við höfum af lögunum,“ segir Ólöf.

Lögin voru sett með það markmið að takmarka vald ráðherra í kjölfar þess að upp komu umdeildar ráðningar í hæstarétt þar sem ráðherra tók ákvarðanir um ráðningu sem var á skjön við ráðgjöf. Ólöf segist ekki halda því fram að endilega sé ástæða sé til þess að fara aftur til slíks háttalags, en veltir því fyrir sér hvort að mögulegt sé að fara þriðju leiðina í þessu samhengi. „Er það eðlilegt að ráðherra hafi ekkert um málið að segja?,“ veltir Ólöf upp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert