Stórir bóksalar forðast verðsamanburð í jólabókaverðkönnun

Mikill munur er á vöruúrvali á milli þeirra sjö verslana …
Mikill munur er á vöruúrvali á milli þeirra sjö verslana sem könnunin náði til. mbl.is/Styrmir Kári

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðsamanburð á jólabókum í sjö bókabúðum og matvöruverslunum víðsvegar um landið á mánudag. Oftast var á milli 20-40% munur á hæsta og lægsta verði milli verslana. Þá var mikill munur á vöruúrvali á milli þeirra sjö verslana sem könnunin náði til.

Fram kemur á vef ASÍ, að verð á 92 bókatitlum hafi verið kannað, sem séu í bókatíðindum 2015. Penninn-Eymundsson, A4, Mál og menning Laugavegi og Iða Lækjargötu töldu það ekki þjóna hagsmunum sínum að verðlagseftirlitið upplýsi neytendur um verð á bókum í þeirra verslunum fyrir jólin.

Oftast var á milli 20-40% munur á hæsta og lægsta verði milli verslana. Lægsta verðið var oftast að finna í verslun Bónus Langholti Akureyri eða á 51 titli, hjá Samkaupum-Úrvali á 11 titlum, Nettó á 10 titlum og Krónan var með lægsta verðið á níu titlum. Hæsta verðið var oftast að finna hjá Hagkaupum Skeifunni eða á 41 bókatitli, Forlagið Fiskislóð var með hæsta verðið á 36 titlum og Bóksala stúdenta á 16 titlum, að því er ASÍ segir.

Mjög mikill munur á vöruúrvali
Mikill munur er á vöruúrvali á milli þeirra sjö verslana sem könnunin náði til.  Af þeim 92 bókatitlum sem skoðaðir voru átti Forlagið 85, Hagkaup 81, Bóksala Stúdenta 77 og Samkaup-Úrval 75. Fæstir bókatitlar voru fáanlegir hjá Samkaupum-Úrvali í Hafnarfirði eða 33, Nettó Borgarnesi átti til 54 og Bónus 58.

Mestur verðmunur í könnuninni var á skáldverkinu Þýska húsið, eftir Arnald Indriðason, sem var ódýrust hjá Krónunni á 3.899 kr. en dýrust hjá Forlaginu á 6.490 kr. sem er 2.591 kr. verðmunur eða 66%. Minnstur verðmunur í könnuninni var á 501 feluhlutur sem var ódýrust hjá Samkaupum-Úrvali á 1.918 kr. en dýrust hjá Forlaginu á 2.090 kr. sem er 172 kr. verðmunur eða 9%.

Nánar hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert