Þjófnaður og innbrot í borginni

mb.is/Þórður Arnar Þórðarson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag haft nokkuð að gera en tilkynnt var um þjófnað í tveimur verslunum í Vestur- og austurbæ Reykjavíkur. Fyrri tilkynningin kom laust fyrir klukkan 13 en sú seinni um klukkan hálfþrjú.

Frekari upplýsingar um málin tvö er ekki að finna í tilkynningu frá lögreglu.

Þá var einnig tilkynnt um innbrot í þrjár bifreiðar milli klukkan 13 og hálffimm.

Lögreglumenn þurfti jafnframt að hafa afskipti af ökumönnum tveggja bifreiða en þeir eru grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna. Annar þessara manna er auk þess grunaður um sölu og meðhöndlun vímuefna.

Þá barst lögreglu einnig tilkynning um eignaspjöll á sumarhúsi laust fyrir klukkan 15.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert