Ný endurhæfingardeild verður opnuð á Landakotsspítala 1. mars næstkomandi.
Um er að ræða tilraunaverkefni Landspítalans til þess að létta álagið á bráðalegudeildum spítalans í Fossvogi og á Hringbraut.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri flæðisviðs Landspítala, viðbótina mjög kærkomna og vonast hún eftir því að tilraunin takist vel til.