Hámarksgreiðslur verða 600 þúsund

Samkvæmt frumvarpsdrögunum verður fæðingarorlofið lengt úr 9 mánuðum í 12.
Samkvæmt frumvarpsdrögunum verður fæðingarorlofið lengt úr 9 mánuðum í 12. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur lagt fram til umsagnar drög að frumvarpi til breytinga á lögum um fæðingar- og foreldraorlof sem áformað er að leggja fyrir komandi þing. Helstu breytingarnar eru að óskertar viðmiðunartekjur verði 300 þúsund krónur, hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi hækki um 62% og að fæðingarorlofið verði lengt í áföngum.

Umsagnarfrestur rennur út 23. ágúst næstkomandi

Í tilkynningu segir að efni  frumvarpsins byggist á tillögum starfshóps sem ráðherra skipaði í lok árs 2014 til að móta framtíðarstefnu stjórnvalda í fæðingarorlofsmálum.

„Helstu markmið þeirra breytinga sem kveðið er á um í frumvarpinu eru að tryggja börnum samvistir við báða foreldra sína, jafnframt því að gera foreldrum betur kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf. Í þessu skyni er áhersla lögð á að raska sem minnst tekjum heimila þegar foreldrar leggja niður störf í fæðingaroflofi til að annast börn sín,“ segir í tilkynningunni.

Helstu breytingar samkvæmt frumvarpsdrögunum eru eftirfarandi:

300.000 kr. óskertar viðmiðunartekjur

„Samkvæmt gildandi lögum fær foreldri fæðingarorlofsgreiðslur sem nema 80% af meðaltali heildarlauna á tilteknu tímabili, en þó aldrei hærri upphæð en 370.000 kr. á mánuði. Samkvæmt áformuðum breytingum munu foreldrar fá fyrstu 300.000 kr. af viðmiðunartekjum óskertar og 80% af þeim viðmiðunartekjum sem eru umfram 300.000 kr. á mánuði.“

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra. mbl.is/Styrmir Kári


Hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi hækka um 62%

„Miðað er við að hámarksgreiðsla í fæðingarorlofi hækki úr 370.000 kr. á mánuði í 600.000 kr. á mánuði.“

Fæðingarorlofið verður lengt í áföngum

„Kveðið er á um að samanlagt fæðingarorlof foreldra á vinnumarkaði verði lengt úr níu mánuðum í tólf. Gert er ráð fyrir að lengingin taki gildi í áföngum á árunum 2019, 2020 og 2021. Þegar lengingin er að fullu komin til framkvæmda er miðað við að hvort foreldri um sig geti átt rétt til fimm mánaða fæðingarorlofs eða greiðslu fæðingarstyrks en að sameiginlegur réttur foreldra verði tveir mánuðir.“

Frétt mbl.is: Stjórnvöld styrki fæðingarorlofskerfið

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert