Jarðskjálfti upp á 2,9 stig

Af vef Veðurstofu Íslands.

Jarðskjálfti sem mældist 2,9 stig varð í Mýrdalsjökli rúmlega sex í morgun en klukkustund áður hafði skjálfti sem mældist 2,3 stig orðið á svipuðum slóðum. 

Fyrri skjálftinn átti upptök sín norðaustur af Goðabungu en sá síðari og um leið sterkari átti upptök sín austnorðaustur af Goðabungu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert