Grunur um íkveikju við Hringrás

Frá slökkvistarfinu við Klettagarða á þriðjudagskvöld.
Frá slökkvistarfinu við Klettagarða á þriðjudagskvöld. mbl.is/Ófeigur

Grunur leikur á því að kveikt hafi verið í á athafnasvæði Hringrásar í Klettagörðum í Reykjavík á þriðjudagskvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Segir þar að tilkynning um eldinn hafi borist klukkan 22.09. Greiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins, en kviknað hafði í málmhrúgu á lóð fyrirtækisins.

Þeir sem geta veitt upplýsingar um málið eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000, með tölvupósti á netfangið gunnar.bachmann@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert