Tveir menn handteknir

Skipið Polar Nanoq.
Skipið Polar Nanoq. mbl.is

Um hádegisbil í dag handtóku lögreglumenn í sérsveit ríkislögreglustjórans tvo grænlenska skipverja um borð í grænlenska fiskiskipinu Polar Nanoq u.þ.b. 90 mílur suðvestur af landinu. Sérsveitarmennirnir fóru um borð í skipið úr þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF.  

Þeir tóku yfir stjórn skipsins sem nú siglir til hafnar í Hafnarfirði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Fram kemur að ástæða aðgerða lögreglunnar sé sú að við rannsókn lögreglu á hvarfi Birnu Brjánsdóttur hafi vaknað grunsemdir um að þeir sem handteknir voru búi yfir upplýsingum um hvarf hennar. Aðgerð sérsveitar ríkislögreglustjórans tókst afar vel, að því er fram kemur í tilkynningunni og var stýrt af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, ríkislögreglustjóranum og Landhelgisgæslu frá stjórnstöð Landhelgisgæslunnar.  Enginn mótþrói var sýndur þegar lögreglumennirnir stigu um borð í skipið og tóku yfir stjórn þess.

Í gær fóru fjórir lögreglumenn frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu með þyrlu Landhelgisgæslunnar til móts við danska herskipið HDMS Triton og þar um borð. Skipið sigldi síðan til móts við Polar Nanoq. Skipin mættust við miðlínu á milli Íslands og Grænlands um kl. 6 í morgun.  Ekki varð af því að lögreglumennirnir færu um borð í grænlenska skipið þegar skipin mættust við miðlínu heldur var ákveðið að skipið sigldi áfram áleiðis til Hafnarfjarðar og þyrla Landhelgisgæslunnar flygi til móts við skipið með sérsveitarmenn ríkislögreglustjórans svo sem að framan greinir. HDMS Triton kemur til hafnar í Hafnarfirði á sama tíma og Polar Nanoq.

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við mbl.is að mennirnir verði yfirheyrðir um leið og þeir komi til landsins, sem að öllum líkindum verði innan tíðar.

Í fréttum Stöðvar 2 var haft eftir Grími að mennirnir séu grunaðir um að hafa upplýsingar um hvarf Birnu, en hann vildi ekki staðfesta hvort þeir væru grunaðir um saknæmt athæfi.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þakkar ríkislögreglustjóranum, Landhelgisgæslunni og áhöfn HDMS Triton fyrir samstarfið og veitta aðstoð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert